Pöbbarölt og pöbbagolf
Við bjóðum upp á pöbbarölt og pöbbagolf í miðbæ Reykjavíkur. Við stingum upp á stað til að byrja á og hittum hópinn þar. Munurinn er sá að pöbbagolf er keppni þar sem sá sem höndlar drykkinn best vinnur. Leiðsögumaður leiðir hópinn og heldur utan um stigin. Hægt er að velja hvort drykkir séu innifaldir eða keyptir á hverjum stað. Aldurstakmark er 20 ár.
Gæsanir og steggjanir
Við erum einn stærsti aðilinn í skemmtun fyrir gæsanir og steggjanir á Íslandi og setjum saman dagskrá fyrir litla og stóra hópa – paintball, lasertag, Útrásina eða fjórhjóla- og buggyferðir með samstarfsaðilum.
Gönguferð með appi
Með appinu okkar gengur þú um Reykjavík á eigin hraða og skoðar það helsta – hús, kaffihús, bari, söfn, styttur og listaverk. Þegar þú nálgast eitthvað áhugavert heyrist hljóð í símanum. Þú bókar, færð niðurhalshlekk og aðgang og appið er virkt í 24 tíma.
Það kostar ekkert að fá tilboð!
Sendu okkur línu og við setjum saman dagskrá fyrir hópinn þinn.
Er aldurstakmark?
20 ára í pöbbarölt og pöbbagolf.
Hvar er Skemmtigarðurinn?
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Er opið allt árið?
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Hver er lágmarksfjöldi?
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hvernig afbóka ég?
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.