Jólagleði Skemmtigarðsins
Hvernig virkar þetta?
Við breytum salnum í íslenskan jólaskála: seríur, grenigreinar, risastórir pakkar og Jólakötturinn sjálfur vaktar barinn. Í boði er jóla-street food, jólabjór af krana og rjúkandi jólaglögg. Þú kemur í það sem við gerum best – skemmtilega afþreyingu – og endar kvöldið í jólamat, pakkaleik og partíi.
Hugmynd að dagskrá
- 17:00 – Hópurinn mætir (í fyrsta lagi kl. 17:00 – þið veljið mætingartíma) og fær sér rjúkandi jólaglögg eða ískaldan jólabjór
- 17:30 – Skemmtileikar, axarkast eða lasertag
- 19:00 – Jólamatur: hangikjöt, purusteik og möndlugrautur með möndlugjöf
- 20:00 – Pakkaleikur og verðlaunaafhending (Ljótasta jólapeysan, Jólasveinn ársins)
- 21:00 – Jóla-skemmtileikar, jóla-pubquiz, jóla-karaoke
- 22:00–23:00 – Jólabjór, svo annar jólabjór… og svo leigubíll heim til Grýlu.
Matur
- Jólaveitingar: hangikjöt á flatkökum, purusteikarlokur með rauðkáli, laufabrauð og möndlugrautur – 7.000 kr. á mann
- Grænmetisvalkostur: sveppa-wellington – sama verð
- 120 g hamborgari, krullufranskar, sósur og meðlæti – 3.500 kr. á mann
Drykkir
- 50 stk. 0,5 L JólaTuborg af krana – 65.000 kr.
- Hvítvíns- eða rauðvínsbelja – 14.990 kr.
- Kokteilabollur (Jólaglögg eða „Hvít jól“ trönuberjafreyðibolla), 8 L – 60.000 kr.
- Frosnir kokteilar (Frosinn espresso martini eða Kahlúa kaffi), 9 L – 60.000 kr.
- Heitt kakó með rjóma og Baileys fyrir alla – 3.000 kr. á mann
- Malt og appelsín og óáfengur jólabjór fyrir þau sem keyra
Afþreying
- JÓLA-PUBQUIZ – 3.990 kr. á mann
- JÓLA-KARAOKE (eingöngu jólalög) – 3.500 kr. á mann
- JÓLA-SKEMMTILEIKAR – 3.500 kr. á mann
- Jólakökuhúsakeppni í liðum – 5.000 kr. á hverja 10 í hópnum
- Útrásin „Jólastressið út“ – 6.990 kr. á mann
- Jóla-axarkast – 4.990 kr. á mann
- Úti lasertag – 8.500 kr. á mann
- Paintball 200 kúlur – 12.500 kr. á mann
- Archery tag – 6.990 kr. á mann
- Bjórbolti í jólapeysum – 6.500 kr. á mann
- Skemmtileikar (hópefli utandyra) – 8.500 kr. á mann
- Morðgátupartý „Morð á jólahlaðborðinu“ – frá 8.000 kr. á mann
Aukahlutir
- Jólasveinahúfur – 2.000 kr. á mann
- Myndakassi og jólabakgrunnur – 70.000 kr.
- Pakkaleikur með stjórnanda (þátttakendur koma með pakka) – 2.000 kr. á mann
- Jólasveinn kíkir í heimsókn og afhendir verðlaun – 100.000 kr.
- Við getum útvegað DJ, trúbador, hljómsveit eða kokteilabarþjón
Lágmarksfjöldi hóps er 20 manns og staðfestingargjald fyrir 20 manns er greitt við bókun. Það gætu verið fleiri hópar í salnum sama kvöld, en aldrei fleiri en 80 manns samtals. Greiðið fyrir 50 manns eða fleiri og salurinn er ykkar einna.