Fjölskyldudagar fyrirtækja | Skemmtigarðurinn
Jólagleði – Nóv · Des

Fjölskyldudagar fyrirtækja

Leigðu heilan Skemmtigarð fyrir fyrirtækið þitt!

  • LeiktímiEftir óskum
  • LágmarksfjöldiFyrirtæki

Við sérhæfum okkur í fjölskyldudögum fyrirtækja

Við tökum að okkur að skipuleggja fjölskyldudaga fyrir fyrirtæki og bjóðum upp á skemmtun fyrir börnin, unglingana og fullorðna fólkið – fjölbreytt fjör við allra hæfi! Á hverju ári bætum við nýjungum við.

Í boði á fjölskyldudögum

  • Lasertag – 6 ára og eldri
  • Minigolfvöllur, 18 holur – allur aldur
  • Andlitsmálning – allur aldur
  • Þrautabraut – allur aldur
  • Hoppukastali – 1–10 ára
  • Bogfimi – 6 ára og eldri
  • Veltipétur – allur aldur
  • Fótboltagolf – allur aldur
  • Frisbígolf – allur aldur
  • Klessuboltar – 7 ára og eldri
  • Alls konar leikir – allur aldur
Hafa samband

Það kostar ekkert að fá tilboð!

Sendu okkur línu og við setjum saman dagskrá fyrir hópinn þinn.

FAQ

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Hafa samband · Skilmálar

Hvar er Skemmtigarðurinn?

Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.

Er opið allt árið?

Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).

Hver er lágmarksfjöldi?

Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.

Hvernig afbóka ég?

Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.

Hvenær á ég að mæta?

Við mælum með að mæta 10–15 mínútum áður en afþreying hefst svo spiltíminn hefjist á réttum tíma.

Í hverju á ég að vera?

Flestar afþreyingar eru utandyra – klæðið ykkur eftir veðri og mætið í góðum skóm. Hlífðarbúnaður og gallar fylgja þar sem þess þarf.

Er aldurstakmark?

Já, í vissar afþreyingar. Undir 18 ára í paintball þurfa undirritað leyfisbréf frá forráðamanni. Útrásin er 13 ára og eldri og áfengi er eingöngu afgreitt til 20 ára og eldri.

Má koma með mat og drykk?

Nei, ekki er heimilt að koma með utanaðkomandi veitingar – að undanskildum afmæliskökum í barnaafmælum. Við bjóðum upp á pizzur, borgara, platta og drykki á staðnum.

Má drekka áfengi fyrir axarkast eða paintball?

Ekki má vera undir áhrifum áfengis í axarkasti. Starfsfólk hefur heimild til að vísa gestum frá án endurgreiðslu ef það telur þá ekki hæfa til að taka þátt.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð og fréttir af því sem er að gerast hjá okkur – beint í pósthólfið.

Skrá mig
Bóka núna