Þorrablót Skemmtigarðsins
Skemmtigarðurinn í Grafarvogi býður til þorrablóts. Þið komið með hópinn – og góða skapið – og við sjáum um salinn, þorramatinn, brennivínið og dagskrána. Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá 14. janúar til 20. febrúar 2027.
Hvernig virkar þetta?
Þið komið með hópinn – og góða skapið – og við sjáum um restina: bjór við komuna, axarkast, þorramatur í trogum með brennivínsskoti, pubquiz, víkingaleikar og bar fram eftir kvöldi. Þið veljið pakka (með þorramat eða án veitinga), fjölda og dag og bókið beint hér á síðunni.
Hugmynd að dagskrá
- 17:00 – Hópurinn mætir (þið veljið mætingartíma) og fær sér bjór
- 18:00 – Axarkast
- 19:30 – Þorramatur í trogum og brennivínsskot
- 20:30 – Þorra-pubquiz
- 21:00 – Víkingaleikar og klisjukennd þorralög
- 22:00–23:00 – Barinn opinn, píla og foosball – og svo leigubíll heim í torfbæinn
Matur
Hákarl, hrútspungar, sviðasulta, hangikjöt, harðfiskur, lifrarpylsa, blóðmör og rófustappa – og lamb fyrir matvonda.
Drykkir
Í öllum pökkum eru 2 bjórar og brennivínsskot á mann. Viljið þið meira?
- 50 stk. 0,5 L Bola af krana – 65.000 kr.
- Auka brennivínsskot – 1.500 kr. í forsölu
- Hvítvíns- eða rauðvínsbelja – 14.990 kr.
- Malt og appelsín og óáfengur bjór fyrir þau sem komu ríðandi á hesti
Afþreying
Allir pakkar innihalda afþreyingu, en það má alltaf bæta við:
- Þorra-pubquiz – 3.990 kr. á mann
- Víkingaleikar (inni) – 3.500 kr. á mann
- Axarkast – 4.990 kr. á mann
- Úti lasertag – 8.500 kr. á mann
- Paintball 200 kúlur – 12.500 kr. á mann
- Karaoke – 20.000 kr. eða eftir stemmningu
Aukahlutir
- Víkingahjálmar – 2.000 kr. á mann í forsölu
- Myndakassi – 70.000 kr.
- Veislustjóri, harmonikkuleikari, trúbador eða DJ – eftir tilboðum
Salurinn
Bar, píla og foosball í salnum. Greiðið fyrir 50 eða fleiri og salurinn er ykkar; annars eru mest 80 manns í salnum.