Fimmtudagsbjórkvöld
Bjór og skemmtun á okkar besta verði.
- Leiktími20:00–23:00
- Lágmarksfjöldi20 manns
Hvað er bjórkvöld?
Bjórkvöldin okkar henta sérstaklega vel fyrir starfsmannahópa og aðra hópa, 20 manns eða fleiri, sem vilja létta skemmtun á fimmtudegi og bestu verðin sem við bjóðum.
Til að bóka þarf að setja saman pakka fyrir að lágmarki 200.000 kr. – við tökum salinn frá fyrir ykkur og setjum saman skemmtun að ykkar vali. Opið er í pílu og foosball, borðspil á svæðinu (og drykkjuspil fyrir þau hörðu) og tónlist sem hentar hópnum.
Afþreying
- Pub quiz – 3.990 kr. á mann
- Karaoke – 20.000 kr.
- Bingó með drykkjum í verðlaun – 2.000 kr. á mann
- Fótboltagolfmót – 4.000 kr. á mann
- Bjórleikar – 5.000 kr. á mann
Það kostar ekkert að fá tilboð!
Sendu okkur línu og við setjum saman dagskrá fyrir hópinn þinn.
Hvað kostar Fimmtudagsbjórkvöld?
Lágmarksverð: Pakki fyrir að lágmarki 200.000 kr.
Hvað er innifalið?
Salur og starfsfólk á bar og í afþreyingum.
Hver er lágmarksfjöldinn?
20 manns.
Hvar er Skemmtigarðurinn?
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Er opið allt árið?
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Hver er lágmarksfjöldi?
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hvernig afbóka ég?
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.