Þorrablót fyrir fyrirtæki og hópa | Skemmtigarðurinn
Jólagleði – Nóv · Des

Þorrablót Skemmtigarðsins

Skemmtigarðurinn í Grafarvogi býður til þorrablóts. Þið komið með hópinn – og góða skapið – og við sjáum um salinn, þorramatinn, brennivínið og dagskrána. Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá 14. janúar til 20. febrúar 2027.

Hvernig virkar þetta?

Þið komið með hópinn – og góða skapið – og við sjáum um restina: bjór við komuna, axarkast, þorramatur í trogum með brennivínsskoti, pubquiz, víkingaleikar og bar fram eftir kvöldi. Þið veljið pakka (með þorramat eða án veitinga), fjölda og dag og bókið beint hér á síðunni.

Hugmynd að dagskrá

  • 17:00 – Hópurinn mætir (þið veljið mætingartíma) og fær sér bjór
  • 18:00 – Axarkast
  • 19:30 – Þorramatur í trogum og brennivínsskot
  • 20:30 – Þorra-pubquiz
  • 21:00 – Víkingaleikar og klisjukennd þorralög
  • 22:00–23:00 – Barinn opinn, píla og foosball – og svo leigubíll heim í torfbæinn

Matur

Hákarl, hrútspungar, sviðasulta, hangikjöt, harðfiskur, lifrarpylsa, blóðmör og rófustappa – og lamb fyrir matvonda.

Drykkir

Í öllum pökkum eru 2 bjórar og brennivínsskot á mann. Viljið þið meira?

  • 50 stk. 0,5 L Bola af krana – 65.000 kr.
  • Auka brennivínsskot – 1.500 kr. í forsölu
  • Hvítvíns- eða rauðvínsbelja – 14.990 kr.
  • Malt og appelsín og óáfengur bjór fyrir þau sem komu ríðandi á hesti

Afþreying

Allir pakkar innihalda afþreyingu, en það má alltaf bæta við:

  • Þorra-pubquiz – 3.990 kr. á mann
  • Víkingaleikar (inni) – 3.500 kr. á mann
  • Axarkast – 4.990 kr. á mann
  • Úti lasertag – 8.500 kr. á mann
  • Paintball 200 kúlur – 12.500 kr. á mann
  • Karaoke – 20.000 kr. eða eftir stemmningu

Aukahlutir

  • Víkingahjálmar – 2.000 kr. á mann í forsölu
  • Myndakassi – 70.000 kr.
  • Veislustjóri, harmonikkuleikari, trúbador eða DJ – eftir tilboðum

Salurinn

Bar, píla og foosball í salnum. Greiðið fyrir 50 eða fleiri og salurinn er ykkar; annars eru mest 80 manns í salnum.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð og fréttir af því sem er að gerast hjá okkur – beint í pósthólfið.

Skrá mig
Bóka núna