Skemmtileikar – pakki 1 · 10.990 kr. á mann | Skemmtigarðurinn
Októberfest – Sept · Okt · Nóv

Skemmtileikar – pakki 1

Skemmtileikar eru okkar tegund af hópefli: hópnum er skipt í lið sem keppa innbyrðis í skemmtilegum leikjum og eitt lið stendur uppi sem sigurvegari.

  • Frá10.990 kr.á mann
  • Leiktími2 klst
  • Lágmarksfjöldi10 manns

Hvað eru Skemmtileikar?

Skemmtileikar eru okkar eigin tegund af hópefli. Hópnum er skipt í lið sem keppa innbyrðis í einföldum en sprenghlægilegum leikjum – og að lokum stendur eitt lið uppi sem sigurvegari. Við fáum upplýsingar um hópinn og útbúum ykkar Skemmtileika út frá þeim. Leikirnir geta t.d. verið:

  • Survivor-þrautir
  • Minute to win it-þrautir
  • Fjölbreyttir „drykkjuleikir“
  • Klassískir hópeflisleikir

Hugvit og herkænska spila stóran sess og liðið sem fær flest stig sigrar. Sigurliðið er krýnt Skemmtigarðsmeistarar og fær medalíur.

Almennt höldum við Skemmtileika hér í Skemmtigarðinum en við getum sett þá upp hvar á landinu sem er – í miðbæ Reykjavíkur, í fyrirtækinu ykkar, á Álftanesi, í Grasagarðinum eða úti á landi.

Tegundir

  • Bjórleikar – fjölbreyttir leikir sem flestir tengjast drykkjum á einhvern hátt (18+).
  • Háskólaleikar – blanda af bjórleikum og survivor (18+).
  • Survivor – áhersla á samvinnu og fjör.
  • Fjölskylduleikar – fjölskylduvænir leikir fyrir alla.
Bóka

Bókaðu hér

Veldu dagsetningu og tíma og kláraðu bókunina á netinu.

Barinn í Skemmtigarðinum Salurinn í Skemmtigarðinum
Matur · Drykkir

Veitingar & drykkir

Endaðu fjörið á pizzum, borgurum og ískaldri kollu. Mat þarf að panta fyrirfram.

Matur

  • Pizzuhlaðborð3.500 kr. á mann
  • 120 g hamborgari m/krullufrönskum3.500 kr. á mann
  • Forréttaplatti (4–5 manns) – jalapeño poppers, laukhringir, franskar, mozzarellastangir, salsasósa9.990 kr.
  • Tortillubakki (4–5 manns)9.990 kr.
  • Samlokubakki (4–5 manns)9.990 kr.

Drykkir

  • Bjórkútur75.000 kr.
  • Rauðvíns- / hvítvínsbelja15.000 kr.
  • Freyðivínsflaska8.000 kr.
  • Kokteilabolla 5 L (Mojito, Skemmti Mule, Basil Gimlet)49.900 kr.
  • Frosnir kokteilar 9 L (Strawberry Daiquiri eða Frozen Margarita)60.000 kr.
  • 10 ískaldir í fötu – lítill bjór13.000 kr.
  • 10 ískaldir í fötu – stór bjór14.500 kr.
  • 10 hrímkaldir Somersby13.000 kr.
  • Flöskuborð – 1 L vodkaflaska og bland50.000 kr.

* Mat þarf að panta fyrirfram. Ekki er heimilt að koma með utanaðkomandi veitingar.

FAQ

Algengar spurningar: Skemmtileikar – pakki 1

Finnurðu ekki svarið? Hafa samband · Skilmálar

Hvað kosta Skemmtileikar – pakki 1?

10.990 kr. á mann.

Hvað er innifalið?

Bjórleikar, 3 stórir bjórar.

Hvað tekur þetta langan tíma?

2 klst.

Hver er lágmarksfjöldinn?

10 manns.

Hvernig bóka ég?

Þú getur bókað beint hér á síðunni – veldu dag og tíma í bókunarglugganum og kláraðu bókunina á netinu. Fyrir stærri hópa eða séróskir sendu póst á info@skemmtigardur.is eða hringdu í 587-4000.

Hvar er Skemmtigarðurinn?

Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.

Er opið allt árið?

Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).

Hver er lágmarksfjöldi?

Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.

Hvernig afbóka ég?

Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð og fréttir af því sem er að gerast hjá okkur – beint í pósthólfið.

Skrá mig
Bóka núna
Skemmtigarðurinn – merki

Skráðu þig á póstlistann

Takk fyrir!