Paintball – pakki 1
16.990 kr. á mann
- Paintball
- 300 skot
- 2 stórir bjórar
2 klst
Hópferð í litbolta er ferð sem enginn gleymir. Leikur þar sem þú skýtur á andstæðinginn með litaskotum – skipt er í 2–3 lið og mælt er með að koma í stærri hóp, minnst 6 manns. Frábært sport fyrir vinahópinn, gæsanir, steggjanir, fyrirtækjahópa og jafnvel fjölskylduna.
Þátttakendur undir 18 ára aldri þurfa að skila inn undirrituðu leyfisbréfi frá forráðamanni.
Veldu dagsetningu og tíma og kláraðu bókunina á netinu.
21.490 kr. á mann.
300 skot, hlífðarbúnaður og galli, axarkast, 2 bjórar.
4 klst.
6 manns.
Þú getur bókað beint hér á síðunni – veldu dag og tíma í bókunarglugganum og kláraðu bókunina á netinu. Fyrir stærri hópa eða séróskir sendu póst á info@skemmtigardur.is eða hringdu í 587-4000.
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.