Lasertag – pakki 1
12.990 kr. á mann
- Úti lasertag
- Axarkast
- 2 stórir bjórar
2,5–3 klst
Úti lasertag er frábær leikur sem hentar öllum hópum, konum og körlum á öllum aldri. Leikirnir eru auðveldir og hver og einn spilar á sínum hraða. Spilaðir eru sömu leikir og í paintball, á sömu völlum, en við notum lasertag byssur í staðinn.
Við lofum feikna fjöri frá upphafi til enda. Hópstjórar okkar taka á móti hópnum, skipta honum í lið og setja upp leikina. Við höldum þétt utan um hópinn frá upphafi til enda.
Veldu dagsetningu og tíma og kláraðu bókunina á netinu.
14.990 kr. á mann.
Úti lasertag, Útrásin, 2 stórir bjórar, hlífðarhetta, hanskar og galli.
3 klst.
6 manns.
Þú getur bókað beint hér á síðunni – veldu dag og tíma í bókunarglugganum og kláraðu bókunina á netinu. Fyrir stærri hópa eða séróskir sendu póst á info@skemmtigardur.is eða hringdu í 587-4000.
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.