Archery tag – pakki 2
14.490 kr. á mann
- Archery tag
- Útrásarherbergi
- 2 stórir bjórar
2,5–3 klst
Þú færð boga, örvar og viðeigandi hlífðarbúnað og ferð svo inn á vígvöllinn með þínu liði og skýtur á andstæðingana – allt hættulaust að sjálfsögðu. Frábært sport fyrir vinahópinn, gæsanir, steggjanir, fyrirtækjahópa og jafnvel fjölskylduna.
Settu á þig hlífðargrímuna, hlauptu inn á vígvöllinn þegar tíminn er settur af stað og náðu í bogann þinn. Feldu þig á bakvið stóra en mjúka veggi vígvallarins og byrjaðu að skjóta.
Hlífðargríma er það eina sem þú þarft – púðarnir framan á örvunum gera þær skaðlausar. Í archery tag kynnist þú bogfimi á öruggan, skemmtilegan og einstakan hátt.
Veldu dagsetningu og tíma og kláraðu bókunina á netinu.
11.990 kr. á mann.
Archery tag, axarkast, 2 stórir bjórar, bogi, örvar og hlífðarbúnaður.
2,5–3 klst.
6 manns.
Þú getur bókað beint hér á síðunni – veldu dag og tíma í bókunarglugganum og kláraðu bókunina á netinu. Fyrir stærri hópa eða séróskir sendu póst á info@skemmtigardur.is eða hringdu í 587-4000.
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.