Jólagleði fyrir hópa – Skemmtigarðurinn
Jólagleði – Nóv · Des

Jólagleði Skemmtigarðsins

Hvernig virkar þetta?

Við breytum salnum í íslenskan jólaskála: seríur, grenigreinar, risastórir pakkar og Jólakötturinn sjálfur vaktar barinn. Í boði er jóla-street food, jólabjór af krana og rjúkandi jólaglögg. Þú kemur í það sem við gerum best – skemmtilega afþreyingu – og endar kvöldið í jólamat, pakkaleik og partíi.

Hugmynd að dagskrá

  • 17:00 – Hópurinn mætir (í fyrsta lagi kl. 17:00 – þið veljið mætingartíma) og fær sér rjúkandi jólaglögg eða ískaldan jólabjór
  • 17:30 – Skemmtileikar, axarkast eða lasertag
  • 19:00 – Jólamatur: hangikjöt, purusteik og möndlugrautur með möndlugjöf
  • 20:00 – Pakkaleikur og verðlaunaafhending (Ljótasta jólapeysan, Jólasveinn ársins)
  • 21:00 – Jóla-skemmtileikar, jóla-pubquiz, jóla-karaoke
  • 22:00–23:00 – Jólabjór, svo annar jólabjór… og svo leigubíll heim til Grýlu.

Matur

  • Jólaveitingar: hangikjöt á flatkökum, purusteikarlokur með rauðkáli, laufabrauð og möndlugrautur – 7.000 kr. á mann
  • Grænmetisvalkostur: sveppa-wellington – sama verð
  • 120 g hamborgari, krullufranskar, sósur og meðlæti – 3.500 kr. á mann

Drykkir

  • 50 stk. 0,5 L JólaTuborg af krana – 65.000 kr.
  • Hvítvíns- eða rauðvínsbelja – 14.990 kr.
  • Kokteilabollur (Jólaglögg eða „Hvít jól“ trönuberjafreyðibolla), 8 L – 60.000 kr.
  • Frosnir kokteilar (Frosinn espresso martini eða Kahlúa kaffi), 9 L – 60.000 kr.
  • Heitt kakó með rjóma og Baileys fyrir alla – 3.000 kr. á mann
  • Malt og appelsín og óáfengur jólabjór fyrir þau sem keyra

Afþreying

  • JÓLA-PUBQUIZ – 3.990 kr. á mann
  • JÓLA-KARAOKE (eingöngu jólalög) – 3.500 kr. á mann
  • JÓLA-SKEMMTILEIKAR – 3.500 kr. á mann
  • Jólakökuhúsakeppni í liðum – 5.000 kr. á hverja 10 í hópnum
  • Útrásin „Jólastressið út“ – 6.990 kr. á mann
  • Jóla-axarkast – 4.990 kr. á mann
  • Úti lasertag – 8.500 kr. á mann
  • Paintball 200 kúlur – 12.500 kr. á mann
  • Archery tag – 6.990 kr. á mann
  • Bjórbolti í jólapeysum – 6.500 kr. á mann
  • Skemmtileikar (hópefli utandyra) – 8.500 kr. á mann
  • Morðgátupartý „Morð á jólahlaðborðinu“ – frá 8.000 kr. á mann

Aukahlutir

  • Jólasveinahúfur – 2.000 kr. á mann
  • Myndakassi og jólabakgrunnur – 70.000 kr.
  • Pakkaleikur með stjórnanda (þátttakendur koma með pakka) – 2.000 kr. á mann
  • Jólasveinn kíkir í heimsókn og afhendir verðlaun – 100.000 kr.
  • Við getum útvegað DJ, trúbador, hljómsveit eða kokteilabarþjón

Lágmarksfjöldi hóps er 20 manns og staðfestingargjald fyrir 20 manns er greitt við bókun. Það gætu verið fleiri hópar í salnum sama kvöld, en aldrei fleiri en 80 manns samtals. Greiðið fyrir 50 manns eða fleiri og salurinn er ykkar einna.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð og fréttir af því sem er að gerast hjá okkur – beint í pósthólfið.

Skrá mig
Bóka núna
Skemmtigarðurinn – merki

Skráðu þig á póstlistann

Takk fyrir!