Karaokekvöld
Hópar geta mætt til okkar, notið matar og drykkjar og sungið að vild. Það er hægt að koma eingöngu í karaoke en við getum líka sett upp söngkeppni með verðlaunaafhendingu. Oftar en ekki nota hópar karaoke sem skemmtilega viðbót við aðra afþreyingu.
Hugmynd að dagskrá
- Allir hittast við barinn og fá sér einn ískaldan á krana – eða sódavatn.
- Beint í að skjóta félagana í paintball.
- Glorhungruð í hamborgaraveislu: 120 g borgari, franskar og meðlæti.
- Endað í karaokepartýi og bjór!
Það kostar ekkert að fá tilboð!
Sendu okkur línu og við setjum saman dagskrá fyrir hópinn þinn.
Hvað kostar Karaoke?
Fer eftir dagskránni sem þið veljið.
Hver er lágmarksfjöldinn?
6 manns.
Hvar er Skemmtigarðurinn?
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Er opið allt árið?
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Hver er lágmarksfjöldi?
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hvernig afbóka ég?
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.