Lasertag – pakki 3
14.990 kr. á mann
- Úti lasertag
- Axarkast
- Pub quiz
- 2 stórir bjórar
4 klst
Pub quiz-in okkar einkennast af fjöri, spurningum, verkefnum og liðsheild – skemmtileg blanda af almennum fróðleik, myndagátum og hljóðgátum.
Liðin svara bæði hefðbundnum og skemmtilegum spurningum, leysa fjölbreytt verkefni og safna þannig stigum. Sigurliðið fær medalíur.
Hægt er að bóka pub quiz hjá okkur í Skemmtigarðinum en við getum líka komið til ykkar með fjörið. Við getum einnig sérútbúið pub quiz fyrir ykkar hóp – hafið þá samband.
Veldu dagsetningu og tíma og kláraðu bókunina á netinu.
3.990 kr. á mann.
Spurningakeppni og verðlaun.
45–90 mín.
15 manns.
Þú getur bókað beint hér á síðunni – veldu dag og tíma í bókunarglugganum og kláraðu bókunina á netinu. Fyrir stærri hópa eða séróskir sendu póst á info@skemmtigardur.is eða hringdu í 587-4000.
Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.
Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).
Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.
Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.