Lasertag fyrir ungmenni og bekki | Skemmtigarðurinn
Októberfest – Sept · Okt · Nóv

Úti lasertag – ungmenni

Eina úti lasertag á Íslandi – fyrir unga fólkið.

  • Frá7.490 kr.á mann
  • Leiktími2 klst
  • Lágmarksfjöldi6 manns

Hvað er úti lasertag?

Úti lasertag er frábær leikur sem hentar öllum hópum. Leikirnir eru auðveldir og hver og einn spilar á sínum hraða. Spilaðir eru sömu leikir og í paintball, á sömu völlum, en við notum lasertag byssur í staðinn.

Hópstjórar okkar taka á móti hópnum, skipta honum í lið og setja upp leikina.

  • Nuketown
  • Keflavöllur (Pýramídinn)
  • Villta vestrið
Bóka

Bókaðu hér

Veldu dagsetningu og tíma og kláraðu bókunina á netinu.

FAQ

Algengar spurningar: Úti lasertag – ungmenni

Finnurðu ekki svarið? Hafa samband · Skilmálar

Hvað kostar Úti lasertag – ungmenni?

7.490 kr. (2 tíma dagskrá) á mann.

Hvað er innifalið?

Hlífðarhetta, hanskar, hlífðargalli – og mikið fjör.

Hvað tekur þetta langan tíma?

2 klst.

Hver er lágmarksfjöldinn?

6 manns.

Hvernig bóka ég?

Þú getur bókað beint hér á síðunni – veldu dag og tíma í bókunarglugganum og kláraðu bókunina á netinu. Fyrir stærri hópa eða séróskir sendu póst á info@skemmtigardur.is eða hringdu í 587-4000.

Hvar er Skemmtigarðurinn?

Í Gufunesi í Grafarvogi, 112 Reykjavík. Frá Gullinbrú er keyrt beina leið u.þ.b. 1 km og þá blasir stórt sjóræningjaskip við á vinstri hönd. Keyrt er í gegnum stórt hlið inn á svæðið.

Er opið allt árið?

Já! Við tökum á móti hópum allt árið, alla daga frá 09:00–23:00 samkvæmt bókunum. Minigolf og fótboltagolf eru opin almenningi á sumrin (sjá opnunartíma á síðum afþreyinganna).

Hver er lágmarksfjöldi?

Í flestar afþreyingar er lágmarksfjöldi 6 manns. Sumar afþreyingar og pakkar miða við 10 manns og barnaafmæli við 15 börn. Lágmarksfjöldi kemur fram á hverri síðu.

Hvernig afbóka ég?

Hægt er að afbóka og fá endurgreitt með þriggja virkra daga fyrirvara. Sendu póst á info@skemmtigardur.is. Nánar í skilmálum.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð og fréttir af því sem er að gerast hjá okkur – beint í pósthólfið.

Skrá mig
Bóka núna
Skemmtigarðurinn – merki

Skráðu þig á póstlistann

Takk fyrir!