Bókunarskilmálar

 

Afbókunarreglur

  • Hægt er að afbóka og óska eftir endurgreiðslu með þriggja sólarhringa fyrirvara.
  • Til að hætta við bókun og fá endurgreitt þarf að hafa samband við info@skemmtigardur.is innan þeirra tímamarka er koma fram hér að ofan.
  • Ekki er hægt að fá endurgreitt ef ekki er óskað eftir endurgreiðslu utan þeirra tímamarka er koma fram hér að ofan.
  • Allar endurgreiðslur fara fram í gegnum tölvupóst, info@skemmtigardur.is.
  • Starfsmenn Skemmtigarðsins hafa ekki heimild til þess að endurgreiða né veita afslætti.

 

Almennir skilmálar

  • Gestir koma á eigin ábyrgð í Skemmtigarðinn. Gestir samþykkja að bera ábyrgð á því tjóni sem þeir valda á tækjum og öðrum einstaklingum vegna athafna sinna.
  • Við mælum með því að mætt sé í Skemmtigarðinn 10-15 mínútum áður en afþreying hefst til þess að spiltími hefjist á réttum tíma.
  • Gestir bera ábyrgð á að koma á tilsettum tíma á svæðið, ekki spilað lengur en sá tími sem bókaður er.
  • Ekki er heimilt að koma með utanaðkomandi veitingar í Skemmtigarðinn, það á sömuleiðis við drykki.
  • Vissar afþreyingar krefjast þess að gestir séu ekki undir áhrifum áfengis, telji starfsmaður að gestur sé ekki hæfur í að taka þátt hefur starfsmaður heimild til þess að vísa gestum frá án endurgreiðslu.
  • Kvörtun og ósk um endurgreiðslu verður að berast innan viku frá því að afþreyingu lýkur.
  • Allir gestir þurfa að skrifa undir ábyrgðarblöð áður en afþreying hefst.
  • Gestum ber að hlýða fyrirmælum starfsfólks, starfsmenn hafa heimild til þess að vísa gestum frá ef fyrirmælum er ekki fylgt
  • Gestum ber að nota hlífðarbúnað í þeim afþreyingum þar sem hlífðarbúnaðs er krafist. Ekki eru veittar neinar undanþágur frá því.
  • Gestum ber að sýna öðrum gestum Skemmtigarðsins tillit og ekki valda óþarfa ónæði.
  • Aldurstakmark er í vissar afþreyingar Skemmtigarðsins, starfsfólk hefur ekki heimild til þess að veita undanþágur frá þessum takmörkunum.
  • Skemmtigarðurinn tekur ekki ábyrgð á persónulegum munum í Skemmtigarðinum né munum sem glatast eða er stolið í Skemmtigarðinum.
  • Gestir bera ábyrgð á því að meta sjálfir hvort þeir hafi heilsu og líkamsburði til þess að taka þátt í þeim afþreyingum sem bókaðar eru.
  • Meginþorri afþreyinga Skemmtigarðsins eru utandyra, gestir bera ábyrgð á því að koma klæddir eftir veðri hverju sinni.
  • Öryggismyndavélar eru staðsettar í garðinum og geta gestir átt von á því að vera í mynd alls staðar á leiksvæðum.
  • Notkun ólöglegra vímuefna er bönnuð í Skemmtigarðinum, geta þeir sem virða það ekki átt von á því að vera vísað af svæðinu.
  • Kynferðisleg áreitni er ekki liðin í Skemmtigarðinum, einstaklingum sem virða það ekki er vísað af svæðinu og er lögreglu gert viðvart.

 

Barnaafmæli

  • Lágmarksfjöldi barna sem greitt er fyrir í barnaafmælum er 10.
  • Við mælum með því að mætt sé í Skemmtigarðinn 10-15 mínútum áður en afmæli hefst til þess að spiltími hefjist á réttum tíma.
  • Gestir bera ábyrgð á að koma á tilsettum tíma á svæðið, ekki er spilað lengur en sá tími sem bókaður er.
  • Foreldrar og forráðamenn bera fulla ábyrgð á börnunum og eru vinsamlegast beðin um að virða aðra gesti Skemmtigarðsins.
  • Ekki er heimilt að koma með utanaðkomandi veitingar í Skemmtigarðinn að undanskyldum afmæliskökum.
  • Ráðlagt er að einn forráðamaður hafi umsjón með 5 börnum, 12 ára og yngri.
  • Ekki er heimilt að skilja börnin ein eftir, forráðamönnum ber að fylgjast með barnahópnum.
  • Við mælum með því að komið sé með nafnalista svo að skráning taki sem skemmstan tíma.
  • Foreldrar bera ábyrgð á því að gestir afmælis fylgi fyrirmælum starfsmanna.
  • Starfsmenn hafa heimild til þess að vísa gestum frá ef fyrirmælum er ekki fylgt.

Skráðu á póstlistann

Takk fyrir!