
Verð:
18.500 kr á hvert barn
ATH – Hægt er að fá niðurgreiðslu á námskeiðinu með Hvatagreiðslum frá Reykjanesbæ.
Greiða þarf þá fyrir námskeiðið og afhenda kvittun á skrifstofu Reykjanesbæjar.
Innifalið í námskeiðinu:
- Matur síðasta daginn.
- Starfsmenn sem skipuleggja og halda um námskeiðið.
Það sem börnin þurfa að taka með sér:
- Útiföt eftir veðri og góða skó.
- Föt til skiptanna,
- Nesti fyrir 4 daga – á föstudeginum verða grillaðar pylsur.
Skilmálar:
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki 4 dögum fyrir námskeið þá áskilur
- Skemmtigarðurinn sér rétt að fella niður námskeiðið og þátttökugjald endurgreitt.
- Ef hámarksþátttöku er náð þá er hægt að skrá börnin á biðlista með því að senda póst á info@skemmtigardur.is
- Skemmtigarðurinn Grafarvogi áskilur sér rétt til notkunar á myndum af börnunum meðan námskeiðinu stendur. Myndbirtingar eru í samræmi við lög og reglur persónuverndar.
Leikjanámskeið fyrir 6-13 ára í Reykjanesbæ
Skemmtigarðurinn heldur skemmtilegt sumar og leikjanámskeið í Reykjanesbæ í sumar.
Námskeiðið er haldið í Reykjanesbæ (nákvæm staðsetning tilkynnt síðar)
Í námskeiðinu erum við að dvelja úti þar sem við leikum okkur í þeim vinsælu afþreyingum sem Skemmtigarðurinn hefur boðið upp á síðustu ár.
Þar má nefna Hópeflisleikir, lasertag, bogfimi, spjaldtölvuleikir, frísbígolf, klessuboltar og margt fleira.
Hver dagur er byggður upp að við leikum okkur saman í margskonar fjöri, borðum nesti í hádeginu og endum daginn aftur í leik.
Síðasta daginn verður uppskeruhátíð þar sem grillaðar verða pylsur og búið til candyfloss.
Hvert námskeið eru 5 dagar í senn og verða nokkur námskeið í sumar
Námskeiðið er tvískipt:
6-9 ára Byrja kl 09:00
10-13 ára Byrja kl 10:00
6-9 ára námskeiðið er frá 09:00 – 13:00
10-13 ára námskeiðið er frá 10:00 – 14:00
Starfsmenn verða á svæðinu 30 mín eftir að námskeiði lýkur.
Júní:
1. námskeið: 14. – 18. Júní (17. júní fellur niður)
2. námskeið: 21. – 25. Júní
3. námskeið: 28. – 2. Júlí – Skráning opnar seinna í sumar
Júlí:
4. námskeið: 5. – 9. Júlí
5. námskeið: 12.-16.Júlí
6. námskeið: 19.-23.Júlí – Skráning opnar seinna í sumar
7. námskeið: 26.- 30 Júlí – Skráning opnar seinna í sumar
Ágúst:
Kemur inn seinna í sumar
*takmarkað pláss í boði