Verð:
20.500 kr á hvert barn
Innifalið í verðinu er matur síðasta daginn.
​Það sem börnin þurfa að taka með sér:

Útiföt eftir veðri og góða skó
Reiðhjól, Hlaupahjól eða línuskauta – Hjálmur er nauðsynlegur
Nesti fyrir 4 daga – á föstudeginum verða grillaðar pylsur.

Skilmálar:

  • Ef lágmarksþátttaka næst ekki 4 dögum fyrir námskeið þá áskilur Skemmtigarðurinn sér rétt að fella niður námskeiðið og þátttökugjald endurgreitt.
  • Ef hámarksþátttöku er náð þá er hægt að skrá börnin á biðlista með því að senda póst á info@skemmtigardur.is
  • Skemmtigarðurinn Grafarvogi áskilur sér rétt til notkunar á myndum af börnunum meðan námskeiðinu stendur. Myndbirtingar eru í samræmi við lög og reglur persónuverndar.

Hvað er hjóla og leikjanámskeið?

 

Skemmtigarðinum í Grafarvogi heldur skemmtilegt hjóla og leikjanámskeið í sumar, þar sem börnin mæta með hjólin sín eða hlaupahjól.

Við förum í stuttar hjólaferðir her í Grafarvoginum og leikum okkur samhliða ferðunum. 

Hver dagur er byggður upp að við hittumst öll í Skemmtigarðinum, förum í hjólaferð, borðum nestið okkar á mismunandi stöðum endum daginn aftur í Skemmtigarðinum í einhverri af þeim afþreyingum sem Skemmtigarðurinn bíður upp á. 

Þar má nefna minigolf, fótboltagolf, hópeflisleikir, lasertag, bogfimi, spjaldtölvuleikir, frísbígolf og margt fleira

Síðasta daginn verður uppskeruhátíð þar sem grillaðar verða pylsur, safi og búið til candyfloss.

Hvert námskeið eru 5 dagar í senn og verða nokkur námskeið í sumar

Námskeiðin eru fyrir 8-13 ára og eru frá 11:00-15:00

Starfsmenn verða á svæðinu 30 mín eftir að námskeiði lýkur.

Júní:
1. námskeið: 5. – 9. Júní
2. námskeið: 12. – 16. Júní
3. námskeið: 19. – 23. Júní
4. námskeið: 26. – 30. Júní

Júlí:

5. námskeið: 3.-7.Júlí –
6. námskeið: 10.-14.Júlí – 

Ágúst:
7. námskeið: 8.-11. Ágúst –

*takmarkað pláss í boði

Bókaðu hér

Skráðu á póstlistann

Takk fyrir!